fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég vil fyrst lýsa yfir almennri ánægju með þá góðu vinnu sem unnin var í umhverfis- og samgöngunefnd og þá prinsippákvörðun og -afstöðu sem liggur í þessu áliti meiri hlutans. Það er tvennt sem mig langaði sérstaklega að nefna í tengslum við atkvæðagreiðsluna, annars vegar það atriði sem haldið hefur verið á lofti í gegnum umræðuna, að með þeirri nálgun sem felst í veggjöldunum verði á sama tíma horft til þess að menn stígi skref til baka með almenna gjaldtöku á umferð og ökutæki, sem er gríðarlega mikil, þannig að ekki verði um að ræða hreina viðbót hvað varðar kostnað í tengslum við umferð.
Hitt atriðið sem rétt er að benda á í þessu samhengi og hefur lítið verið rætt miðað við samhengi hlutanna er að auðvitað er mikil vinna eftir hvað borgarlínuhugmyndir varðar. Það verður áhugavert að sjá hvaða línur verða lagðar í þeirri vinnu sem verið er að vinna. Fjármagn (Forseti hringir.) í þá áttina er mjög takmarkað í þeim tillögum sem nú liggja fyrir en það kemur til skoðunar á síðari stigum.