fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég styð nefndarálit meiri hlutans með fyrirvara sem ég geri um fjárhæð veggjalda. Það á eftir að útfæra hana nánar. Ég geri fyrirvara um svokallaða margfeldisinnheimtu þar sem menn fara í gegnum mörg veggjaldahlið, að þar sé ekki um að ræða óhóflega gjaldtöku af þeim sem það þurfa að gera, bæði á höfuðborgarsvæðinu og hjá þeim sem eiga leið til höfuðborgarinnar utan af landi.
Þetta eru skýr skilaboð til ráðherra, ekki algjörlega útfærð heldur skilaboð til ráðherra um að koma fram á þingi með útfærðar tillögur í þessa veru. Ég styð að það verði gert. Ég tel mjög brýnt að ganga í að laga vegakerfið og að þetta sé leið til þess.
Ég hef einnig fyrirvara við það að gjöld á bifreiðaeigendur verði lækkuð samhliða upptöku veggjalda.