149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[14:59]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Þegar ég spurði Björn Leví Gunnarsson, sem situr í umhverfis- og samgöngunefnd fyrir Pírata, hvernig hægt væri að greiða fyrir þessar mikilvægu samgöngubætur á suðvesturhorninu talaði hann um að slys kosta samfélagið í heild 50 milljarða á ári og að það er búið að reikna út að það verður helmingi minni kostnaður fyrir samfélagið ef farið verður í þessar framkvæmdir.

Þá getur maður reiknað út að ef tekið er lán fyrir því tekur í grófum dráttum fimm ár, segjum samt að það taki tíu ár, að borga lánið upp. Ef við förum í framkvæmdirnar aukum við öryggi og það borgar sig upp á tíu árum í staðinn fyrir að taka lán sem á að borga upp á 20 árum og láta landsmenn borga fyrir það. Þetta er mjög einfalt reikningsdæmi.