fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Það er alveg ljóst að við í Samfylkingunni munum ekki greiða atkvæði með þessum tillögum um álagningu vegskatts og veggjalda vegna þess að við lítum svo á að hér sé um að ræða skattheimtu sem muni leggjast þyngst á þá sem höllustum fæti standa. Það er ekki hugað að þeim sem eiga sáralítið. Ég verð að segja, bara svona af því að ég er komin upp, í þetta eina skipti, að það er eiginlega kostulegt að horfa á stjórnarliða koma hingað upp hvern á fætur öðrum eins og þeir séu í kosningabaráttu en ekki að taka ákvarðanir um það sem við erum að fara að gera núna og næstu árin. Það er talað um að framtíðin verði frábær, að allt verði betra þá, í staðinn fyrir að þau taki ábyrgð á gjörðum sínum sem þau eru hér í krafti meiri hluta að framkvæma.
Við munum að sjálfsögðu greiða atkvæði skýrt gegn þessum áformum um skattlagningu á allan almenning.