149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[15:16]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Við Íslendingar búum við afar sérkennilegar aðstæður. Við erum mjög fámenn þjóð í gríðarlega stóru landi. Við ásamt þremur, fjórum öðrum ríkjum, Panama, Kúveit, Mongólíu og Djíbútí, búum við þær aðstæður að um 70% þjóðarinnar, jafnvel meira, búa á mjög afmörkuðum stað og svo aðrir mjög dreift.

Þess vegna höfum við á síðustu 100 árum þurft að byggja alla nauðsynlega miðlæga þjónustu, sjúkrahús, skóla, stjórnsýslu, Alþingi, menningarsetur, sem mest upp á höfuðborgarsvæðinu til þess að geta staðið að því af einhverri alvöru. En til þess að það sé samkomulag um slíkt þurfum við líka að tryggja að allur almenningur í landinu eigi möguleika á að sækja þessa þjónustu. Ég tel þess vegna mikilvægt að við skoðum leið eins og þá sem hér er til umræðu og stóreflum auðvitað almenningssamgöngur á landi jafnframt.