149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[15:17]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um mikilvægt hagsmunamál þeirra íbúa landsins sem þurfa að fara um langan veg til að sækja alls kyns þjónustu á höfuðborgarsvæðið. Allt bendir til þess að slík aðgerð geti haft mjög jákvæð áhrif á lífskjör þessara íbúa. Þetta er auðvitað engin töfralausn en um mjög mikilvægan hlekk er að ræða til að auka jafnræði í búsetu á landinu.