samgönguáætlun 2019--2033.
Herra forseti. Þessi tillaga lýtur að því að við gerum almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir þá sem á hverjum degi þurfa að ferðast til og frá vinnu með ökutæki. Við erum að reyna að stuðla að því að draga úr mengun, draga úr losun á koltvísýringi með því að fá fleiri til að nota almenningssamgöngur. Til að það sé raunhæfur valkostur þarf að byggja þetta net upp af alvöru. Við teljum að það verði gert með því að fjölga farþegum og auka umfang almenningssamgangna, auka tíðni ferða o.s.frv. Það skiptir mjög miklu máli að þeir sem nota almenningssamgöngur á hverjum degi finni verulega á eigin veski að það borgi sig. En það er ekki raunin í dag og það er heldur ekki raunin í dag að verið sé að afgreiða þetta af einhverri festu (Forseti hringir.) af stjórnvöldum vegna þess að meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur ekki eina krónu í þetta verkefni, ekki eina krónu. Öll sveitarfélögin á landinu (Forseti hringir.) hafa sagt upp samningnum við ríkið vegna almenningssamgangna.