149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

fæðingar- og foreldraorlof.

154. mál
[15:47]
Horfa

Flm. (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að eyða tveimur mínútum hér uppi þar sem ekki kom nein spurning. Ég heyri að við hv. þingmaður erum nokkuð sammála og samstiga um það verkefni að koma þessu í gegn.