fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Já, ég er algjörlega ósammála því. Þetta eru auðvitað tvær aðgerðir sem þjóna sínu markmiðinu hvor. Ég hef stutt það í sjálfu sér að þakið væri hækkað líka vegna þess að ég held að það sé bara býsna mikilvægt fyrir barn, jafnvel það sem á hálaunað foreldri eða föður, að það fái líka umönnun hans eða hennar. Ég held að það skipti máli til að ná til þess hóps. En hitt er algjörlega sjálfstætt verkefni og mjög nauðsynlegt, þ.e. að lengja þann tíma sem barnið fær að hafa með foreldri sínu. Þó að við í Samfylkingunni þykjumst hafa vit á mörgu er ég ekki sérfræðingur í þroskaskeiði barns fyrstu vikur og mánuði, en það sem við höfum lesið okkur til og það sem við heyrum er að þetta skeið skiptir að mati sérfræðinga meira máli en okkur grunaði áður. Á tímum hraða og anna þar sem gerðar eru meiri og meiri kröfur á fólk, jafnvel pressa frá vinnuveitendum, er mjög mikilvægt að þessi réttur sé tryggður þannig að foreldrar, sama í hvaða stöðu þeir eru, hjá hvaða vinnuveitanda þeir eru og hvaða tekjur þeir hafa, geti nýtt þennan rétt sinn og ekki síður, eins og hv. þm. Halldóra Mogensen kom inn á, að barnið fái þá samveru með foreldrum sem það á rétt á og þarf á að halda fyrstu mánuðina.