fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Aðeins varðandi fyrri spurninguna. Eins og kom fram áðan sagði ég að sveitarfélög væru í mjög misjöfnum færum og mjög misjafnlega í stakk búin til að sinna þessu. Auðvitað getur það snúist um vilja sveitarstjórnarfólks, en oft ekkert síður tekjulega stöðu, jafnvel fámenni, þar sem ekki er hægt að halda úti þessu millistigi sem hefur heitið dagforeldrar. Þá er mjög mikilvægt að ríkið mæti sveitarfélögum sem hafa ekki sömu möguleika og ríkisvaldið hefur til að afla sér sjálfstæðra tekna með skattkerfisbreytingum. Sveitarfélögum er mjög þröngt sniðinn stakkur þegar kemur að tekjuöflun og mega yfirleitt bara innheimta kostnað við framkvæmdir og leggja á gjöld sem standa undir þeim þannig að það er mjög mikilvægt. Ég hef reyndar verið talsmaður þess að skera alveg upp skiptingu tekjustofna milli ríkis og sveitarfélaga og gera sveitarfélögunum kleift líka að mæta þessu úr hinni áttinni.
Ég held vissulega að þetta sé afskaplega mikilvægt til að mæta sveitarfélögum og svo held ég að þetta sé nauðsynlegt innlegg í kjarasamninga, þótt ég sé almennt ekki þeirrar skoðunar að það eigi að nota svona mál sem skiptimynt þar. Alvörufélagshyggjustjórn hefði náttúrlega lagt strax fram stjórnarsáttmála þar sem hún hefði gert grein fyrir því hvernig hún ætlaði að styrkja félagslega kerfið. Það var ekki gert með þessari ríkisstjórn og þá þurfum við að reyna að bæta úr því.
Jú, hv. þingmaður, ég er líka opinn fyrir því að skoða skiptinguna milli foreldra. Þjóðirnar á hinum Norðurlöndunum hafa gert þetta með mismunandi hætti, en hér var einfaldlega farið eftir tillögum starfshópsins.