149. löggjafarþing — 65. fundur,  7. feb. 2019.

Landssímahúsið við Austurvöll.

538. mál
[16:52]
Horfa

Flm. (Ólafur Ísleifsson) (U):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um að ríkið eignist Landssímahúsið við Austurvöll. Flutningsmenn auk mín eru hv. alþingismenn Ásmundur Friðriksson, Karl Gauti Hjaltason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Texti ályktunarinnar er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að beita sér fyrir því að ríkið eignist Landssímahúsið við Austurvöll með því að leita samninga um kaup ríkisins á húsinu en að öðrum kosti að hefja undirbúning þess að ríkið taki eignarnámi þann hluta byggingarlóðar sem tilheyrir Víkurkirkjugarði. Ráðherra flytji Alþingi munnlega skýrslu um aðgerðir í þessa veru á vorþingi 2019.“

Herra forseti. Ég hygg að flestum muni vera ljóst tilefni tillöguflutnings af þessu tagi. Í sem allra skemmstu máli liggja forsendur fyrir tillöguflutningnum annars vegar í friðhelgi Alþingis og hins vegar í friðhelgi hins forna Reykjavíkurkirkjugarðs. Mun ég nú víkja í sem stystu máli að þeim þáttum.

Samkvæmt 36. gr. stjórnarskrárinnar er Alþingi friðheilagt og má enginn raska friði né frelsi þess. Fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á Landssímareitnum við Austurvöll, þar sem eiga að rísa stórt og mikið hótel og veitingastaðir með tilheyrandi umferð ferðamanna og hópferðabíla, mega með réttu teljast fela í sér röskun á þingfriði í andstöðu við umrætt ákvæði stjórnarskrárinnar. Slíkt má ekki viðgangast. Það er staðreynd að á Landssímareitnum var um langan aldur kirkjugarður Reykvíkinga en upphaf kirkjugarðs Víkurkirkju má rekja hátt í 1000 ár aftur í tímann. Þar var jarðað fólk á seinni hluta 19. aldar, a.m.k. fram á níunda áratug aldarinnar.

Landssímareiturinn á sér langa sögu. Ríkisstjórnin greip á árunum 1965–1966 inn í rás atburða sem ógnaði gamla kirkjugarðinum og kom í veg fyrir að mikil bygging, álíka stór og sem næst á alveg sama stað og þar sem nú er áformað að rísi hótel, risi sunnan við Landssímahúsið. Skipulagsnefnd kirkjugarða, undir forystu Sigurbjarnar Einarssonar biskups og Kristjáns Eldjárns þjóðminjavarðar, hafði í mars 1965 vakið athygli borgarlögmanns á því að lög heimiluðu ekki að þarna yrði reist mannvirki nema samkvæmt sérstakri undanþágu ráðherra, að fengnu samþykki skipulagsnefndar kirkjugarða, sem var fyrirrennari þess sem nú heitir kirkjugarðaráð. Sambærilegt ákvæði er enn í lögum, samanber 33. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993.

Ríkisstjórnin fjallaði á fundum sínum í september 1965 um nauðsyn þess að ekki yrði leyfð bygging norðan Kirkjustrætis, milli Aðalstrætis og Thorvaldsensstrætis. Sú saga er rakin ítarlega í greinargerð. Ég skal ekki dvelja lengur við hana um annað en að vekja athygli á því að ríkisstjórnin hafði á sjöunda áratugnum uppi mikla árvekni í því máli.

Hafa verður hugfast að auk aðkomu gesta þarf að huga að aðflutningi ýmissa vara og vista og annarra nauðsynja til hótelrekstrar og því fylgir að sjálfsögðu bílaumferð. Fram hefur komið í fjölmiðlum að slökkvilið þurfi einnig aðkomubraut um Fógetagarðinn fyrir slökkvitæki sem kosta muni mikið rask í garðinum. Fram kemur á uppdrætti að fyrirhuguð braut fyrir tæki slökkviliðs er í Fógetagarði. Mun þetta hafa ýtt við Minjastofnun að óska friðlýsingar Fógetagarðsins. Tilkynnt var 8. janúar sl. að mennta- og menningarmálaráðherra hefði fallist á tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu Víkurgarðs. Allt þetta sýnir að hótelið er of stórt og á of viðkvæmum stað þótt ekki væri einnig kirkjugarði til að dreifa.

Herra forseti. Athuga ber að Fógetagarðurinn er aðeins vesturhluti gamla kirkjugarðsins, en verndunarmenn tala um allan Víkurkirkjugarð, líka austurhlutann þar sem hótelið skal byggt.

Ég bendi á að í fylgiskjali III, sem fylgir þessari tillögu til þingsályktunar, er uppdráttur Hjörleifs Stefánssonar arkitekts sem mjög hefur sinnt og gefið sig að málinu og skipulagsmálum á því svæði. Þetta er nýr uppdráttur sem hann góðfúslega lét 1. flutningsmanni í té við undirbúning málsins. Ég vek sérstaka athygli á þeim uppdrætti, sem hann upplýsir 1. flutningsmann um, þann sem hér stendur, að sé reistur á nýjustu rannsóknum, m.a. sagnfræðinga, sem snerta þetta mál.

Allur austurhlutinn að Thorvaldsensstræti nefnist Landssímareitur og u.þ.b. helmingur þess reits, vesturhelmingurinn, heyrði til Víkurkirkjugarði. Þar voru grafnar upp 32 grafir árið 2016 við fornleifarannsóknir, þar af 22 heillegar beinagrindur í heillegum kistum og var allt flutt á Þjóðminjasafnið til að rýma fyrir hótelinu. Þarna nærri, í austurhlutanum, komu líka upp bein árið 2015 en voru grafin aftur annars staðar í austurhlutanum. Aftur komu upp bein í austurhlutanum árið 1967 þegar leyft var að grafa skurð fyrir undirstöðu viðbyggingarinnar sem var brotin niður sumarið 2018. Kjallaragröftur var ekki leyfður 1967. Við skurðgröftinn þetta ár komu fimm kistur með beinum einstaklinga og líka bein sjötta einstaklings án kistuleifa. Var allt flutt á Þjóðminjasafnið. Í austurhluta Víkurkirkjugarðs á Landssímareitnum voru áður málmhellur notaðar sem legsteinar með nöfnum jarðsettra en Landssíminn, áður Póstur og sími, lét fjarlægja þær af leiðum. Þær eru núna í Fógetagarðinum.

Loks sást í austurhlutanum enn árið 1966 leiði mæðgna sem voru jarðsettar 1882 og 1883 og var legsteinn á leiðinu og girðing umhverfis. Á dögunum fundust svo kistuleifar í austurhlutanum að sögn fjölmiðla. Hinn 8. janúar 2019, eins og ég nefndi áður, birti Minjastofnun tilkynningu um skyndifriðun austurhluta garðsins með varanlega friðlýsingu í huga. Skyndifriðunin gildir í 42 daga. Ég vek athygli á því að á heimasíðu Minjastofnunar er að finna greinargerð stofnunarinnar sem því tengist.

Virðingu fyrir 1000 ára grafreit Reykvíkinga og virðingu fyrir friðhelgi Alþingis verður að sýna með öðrum hætti en að breyta reitnum í ferðamannamiðstöð. Fyrirhuguðu hóteli er ofaukið í hjarta höfuðstaðarins og auk grófra helgispjalla er mikilvægu og sögufrægu svæði fórnað fyrir einkahagsmuni. Í kirkjugarðalögum segir að niðurlagðan kirkjugarð megi ekki nota til neins þess sem óviðeigandi er að dómi prófasts. Ekki megi þar jarðrask gera né reisa nein mannvirki nema ráðherra veiti undanþágu að fengnu samþykki kirkjugarðaráðs. Slík undanþága hefur ekki verið veitt.

Vel fer á, herra forseti, að þessi forni og söguhelgi kirkjugarður verði í heild sinni skrúðgarður fyrir almenning. Telja flutningsmenn tillögunnar að úr því sem komið er verði framtíð reitsins best borgið þannig að ríkið verði eigandi Landssímahússins, sem gæti sem best nýst í þágu Alþingis, eða að ríkið eftir atvikum eignist þann hluta byggingarlóðar sem tilheyrir Víkurkirkjugarði, sem myndi nægja til að koma fram þeirri friðun á garðinum sem hér er stefnt að.

Lagt er til að ráðherra verði falið að tryggja framkvæmd þessa og jafnframt að Alþingi verði upplýst um málið, eins og áður gat, á vorþingi 2019.

Herra forseti. Ég vil vekja athygli á ítarlegum fylgigögnum með þessari þingsályktunartillögu. Ég hef áður getið um nýjan uppdrátt Hjörleifs Stefánssonar arkitekts þar sem leitast er við að marka með sem bestum hætti, þ.e. miðað við þau bestu gögn sem fáanleg eru, austurhluta garðsins, hvar austurmörk garðsins hafa legið. Önnur fylgiskjöl eru áskorun heiðursborgara Reykjavíkur, þau eru frú Vigdís Finnbogadóttir, Þorgerður Ingólfsdóttir, Erró og Friðrik Ólafsson. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka Friðriki Ólafssyni fyrir liðsinni hans við undirbúning tillögunnar. Í áskoruninni er rakið að undirritaðir heiðursborgarar, sem hafi notið þess trausts að hafa verið valin heiðursborgarar Reykjavíkur, telji með öllu óverjandi að reist verði hótel í Víkurgarði, einum elsta kirkjugarði landsins og helgistað í höfuðborginni.

Áskorun þeirra lýkur með þessum orðum, með leyfi forseta:

„Við skorum því á Reykjavíkurborg og byggingaraðila að láta þegar í stað af fyrirhuguðum áformum, sem myndu fyrirsjáanlega valda óbætanlegum spjöllum á þessum viðkvæma og söguhelga reit í hjarta höfuðborgarinnar. Við erum þess fullviss að afkomendur okkar muni um alla framtíð verða þakklátir ef svo giftusamlega tækist til að horfið yrði frá þessum áformum og Víkurgarði þyrmt.“

Svo mörg voru þau orð, herra forseti.

Í þriðja lagi fylgir með tillögunni ítarleg greinargerð með áskorun fyrrgreindra heiðursborgara Reykjavíkur. Þar er mjög rækilega farið yfir fjölmarga þætti málsins.

Þannig stendur líka á að fjöldi manns hefur kvatt sér hljóðs í almennri opinberri umræðu, á síðum dagblaða, ekki síst Morgunblaðsins og fleiri blaða og víðar, fornleifafræðingar, sagnfræðingar, arkitektar og fjöldamargir aðrir, í þeirri viðleitni að verja helgi þessa reits, afstýra áformum, afstýra byggingaráformum. Það má ekki daufheyrast við þeim málefnalegu rökum sem þeir aðilar hafa flutt af mikilli einurð og mikilli þekkingu og yfirsýn og ég leyfi mér að segja þjóðrækni og virðingu fyrir helgi hins forna Víkurgarðs.

Ég rifja upp í lokin að hann á sér 1000 ára sögu og að þar liggja 30 kynslóðir Reykvíkinga.

Ég leyfi mér að vona að þetta mál fái þann stuðning sem ég tel það verðskulda. Ég tel að með framlagningu málsins sé sýnt fram á að á Alþingi er vilji til að sporna við þeim áformum. Ég vona að sá metnaður í sögulegu tilliti og með tilliti til helgi hins forna kirkjugarðs verði til þess að honum verði þyrmt, eins og það er orðað í áskorun heiðursborgaranna.