ÁlfE fyrir SMc, UBK fyrir ÁsF.
Borist hefur bréf frá 12. þm. Suðurk., Smára McCarthy, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Ásmundur Friðriksson, 4. þm. Suðurk., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni.
Í dag, mánudaginn 18. febrúar, taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þá 1. varamaður á lista Pírata í Suðurkjördæmi, Álfheiður Eymarsdóttir, og fyrsti varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Unnur Brá Konráðsdóttir.
Þær hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.