149. löggjafarþing — 66. fundur, 18. feb. 2019.
afsal varaþingmennsku.
Borist hefur bréf frá 2. varamanni á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður, Snæbirni Brynjarssyni, dagsett 11. febrúar sl., þar sem hann segir af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn. Samkvæmt þessu færast varamenn flokksins neðar á listanum upp um eitt sæti og 2. varaþingmaður flokksins í kjördæminu verður Katla Hólm Þórhildardóttir.