Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá eftirtöldum ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum; frá mennta- og menningarmálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 401, um aldursgreiningar Háskóla Íslands á tönnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, frá Loga Einarssyni; frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 843, um ófrjósemisaðgerðir, frá Olgu Margréti Cilia; og loks tvær frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurna á þskj. 510, um útgáfu á ársskýrslum, frá Óla Birni Kárasyni, og á þskj. 254, um íslenska ríkisborgara á Bretlandi og útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.