149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

samstarf við utanríkismálanefnd um öryggismál.

[15:22]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ef ég byrja fyrst á því sem lýtur að samráði við utanríkismálanefnd um aukið samstarf við Bandaríkin á sviði viðskipta er það nokkuð sem er á algjöru byrjunarstigi og er í höndum hæstv. utanríkisráðherra sem hér situr og er til svara. Það er því hægur vandi að spyrja hann nánar út í hvar það mál er statt. Hins vegar liggur algjörlega fyrir að það á að hafa samráð við utanríkismálanefnd Alþingis um allar meiri háttar ákvarðanir. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að hæstv. utanríkisráðherra muni eiga gott samráð við utanríkismálanefnd Alþingis um markmið Íslands í því samstarfi, sem skiptir okkur auðvitað máli. Það skiptir máli fyrir litla þjóð eins og okkur, og þar held ég að við hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir séum sammála, að eiga sem best samstarf við ólíka aðila, hvort sem við erum að tala um Norðurlönd, vinaþjóðir okkar í Evrópu, Bandaríkin og Kanada og auðvitað víðar um heiminn. Ég er talsmaður þess að við eigum víðtækt samstarf, fjölþjóðlegt samstarf á sem flestum sviðum.

Þegar kemur að öryggis- og varnarmálunum, sem hv. þingmaður ræddi, held ég líka að það hafi verið gott skref að Alþingi sammæltist um að skilgreina öryggishugtakið með breiðari hætti en áður hefur verið gert þegar þjóðaröryggisstefnan var samþykkt á sínum tíma. Það hefur að mínu viti verið mjög mikilvægt að Alþingi taki afstöðu til slíkrar stefnu. Nú er ekkert launungarmál að ég greiddi þeirri stefnu ekki atkvæði mitt og ekki flokksmenn mínir heldur af því að við vorum ósammála einu grundvallaratriði í stefnunni, sem er aðildin að Atlantshafsbandalaginu. Það breytir því þó ekki, og það kom mjög skýrt fram í umræðum okkar um málið, að við fögnum því að Alþingi taki lýðræðislega umræðu, afgreiði svona stefnu sem skiptir okkur öll máli, á lýðræðislegan hátt. Það er að mínu viti til marks um ákveðinn (Forseti hringir.) þroska lýðræðisins að Alþingi hafi náð að ljúka þeirri vinnu 2016.