nýting fjármuna í væntanlegum þjóðarsjóði.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hann vísar í orð hæstv. samgönguráðherra sem fram komu í útvarpsþætti, ef ég kann þetta rétt, þar sem hann bendir á að í raun og veru hafi ekki meira verið samþykkt hér við afgreiðslu samgönguáætlunar, eins og hv. þingmaður þekkir væntanlega mjög vel sem nefndarmaður í þeirri nefnd, en tillaga sem hljóðaði svo:
„Unnið verði að útfærslu nýrra fjármögnunarleiða og nauðsynlegri frumvarpsgerð með það að markmiði að flýta framkvæmdum á áætluninni og skapa fjárhagslegt rými fyrir nýjar framkvæmdir.“
Segja má að með þeirri samþykkt hafi því verið vísað til hæstv. samgönguráðherra að vinna að nýjum fjármögnunarleiðum. Hann fór í þessu viðtali yfir að rætt hefði verið í upphafi að nýta eignatekjur í auknum mæli til uppbyggingar í samgöngukerfinu. Það erum við auðvitað að gera, eins og við fórum yfir í umræðu um samgönguáætlun, u.þ.b. 20 milljörðum er aukalega varið til fjármögnunar hennar með eignatekjum úr fjármálakerfinu til viðbótar við það sem við höfum séð á undanförnum árum. En eigi að síður eru hugmyndir manna þær að gera þurfi meira. Ég get tekið undir það í ljósi þess að þörfin er mikil og uppsöfnuð.
Ég lít svo á að samgönguráðherra hafi verið að horfa til þess að hugsanlega mætti skoða frekari eignatekjur og nefnir hann þjóðarsjóðinn í þessu samhengi. Hins vegar er í stjórnarsáttmála fjallað um þjóðarsjóð. Þar er hann eyrnamerktur arðgreiðslum úr Landsvirkjun, eins og fram kemur í frumvarpi fjármálaráðherra, og þessi tvö verkefni sérstaklega rædd, nýsköpunarfjárfesting og hjúkrunarheimili, sem við skilgreinum sem ákveðin kynslóðaverkefni.
Ég tel þetta vera mál sem rímar mjög vel við þá hugmynd að við séum að hugsa dálítið lengra fram í tímann. Ég hefði sjálf talið eðlilegt að skoða aðrar leiðir þegar kemur að samgöngumálum. Ég útiloka ekki að aðrar eignatekjur, eins og hæstv. samgönguráðherra sagði í sama viðtali, geti þarna komið að notum. Það liggur hins vegar fyrir að það er mikið verk fram undan þangað til ný samgönguáætlun kemur fram í haust (Forseti hringir.) ef mæta á þeim hugmyndum sem hafa verið uppi um auknar framkvæmdir.