149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

nýting fjármuna í væntanlegum þjóðarsjóði.

[15:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Það er ánægjuefni að hæstv. ráðherra opni með þessum hætti á umbreytingu ríkiseigna til fjárfestinga í innviðum með sérstaka áherslu á samgönguverkefni. En þetta er kannski hluti af vandamáli sem kom upp á liðnu ári þegar menn seildust í svokallaðan neyðarsjóð til að sækja 4 milljarða í viðhaldsverkefni í samgöngumálum. Þessi umgangur um sjóði er oft frjálslegur, leyfi ég mér að segja, og þess vegna vakti þetta sérstaklega athygli af því að í frumvarpinu eru tilgreindir 16 milljarðar. Þeim er ráðstafað, 6 milljarðar í hjúkrunarheimili og 10 í nýsköpun, þannig að þar er ekkert borð fyrir báru, eins og kemur fram í texta frumvarpsins. Þetta kom nokkuð á óvart. En ég tek fagnandi öllum þeim hugmyndum sem verða til þess að svigrúm verður til að auka í framkvæmdir í samgöngumálum.

En þá er það spurningin til forsætisráðherra: Sér hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) fyrir sér að auka þetta svigrúm úr 16 upp í einhverja aðra tölu í meðförum þingsins?