nýting fjármuna í væntanlegum þjóðarsjóði.
Herra forseti. Ég heyri að ég hef ekki verið alveg nógu skýr í mínu fyrra svari. Ég sagði þá að ég teldi ekki útilokað að við nýttum einhverjar eignatekjur til uppbyggingar samgöngukerfisins til viðbótar við það sem þegar hefur verið gert. Hvað varðar þjóðarsjóðinn er hann skilgreindur í stjórnarsáttmála. Hér liggur fyrir frumvarp og ég hef talið mjög mikilvægt, eins og hv. þingmaður nefnir, að við séum með nokkuð skýrar línur þegar við ráðumst í að koma slíkum sjóði á laggirnar og það sé mjög skýrt skilgreint ef við ætlum að nýta fjármuni í önnur verkefni.
Hins vegar finnst mér ekkert, eins og kom fram í þessu viðtali við samgönguráðherra, að því að við skoðum aðrar leiðir en mest hafa verið í opinberri umræðu, þ.e. veggjaldaleiðina, þ.e. frekari eignatekjur en þegar hefur verið gert til uppbyggingar samgöngukerfisins. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þörfin er mikil, væntingarnar eru miklar. Við þurfum að horfa til þess að þeim hefur fjölgað sem fara um vegina, við erum að breyta orkugjöfum og við erum með aðrar hugmyndir um það hvernig við viljum byggja upp samgöngumannvirki, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Við erum opin fyrir leiðum (Forseti hringir.) en engin ákvörðun hefur verið tekin um að breyta þeim fyrirætlunum sem birtast í frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra í þjóðarsjóð sem er takt við stjórnarsáttmála.