sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum.
Herra forseti. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að allir íbúar landsins hafi sem jafnastan aðgang að stofnunum hins opinbera. Á ríkinu hvílir skylda til þess að svo sé. Þannig verður ríkisvaldið að leitast við að sinna öllum íbúum landsins og hefur lengi verið viðurkennd sú skipan að í dreifðum byggðum sé þeirri opinberri þjónustu sinnt þannig að hver og einn þurfi ekki að leita mjög langt eftir sjálfsagðri þjónustu hins opinbera og hafi að henni tiltölulega greiðan aðgang.
Þetta er auðvitað ekki auðvelt viðfangsefni og hefur löggjafinn því sett fyrirmæli um hvernig margháttaðri þjónustu ríkisins skuli háttað í landinu. Í nýlegum lögum um framkvæmdarvald og stjórnsýslu í héraði frá 2014 er einmitt að finna ein slík fyrirmæli til framkvæmdarvaldsins. Þar er í 2. gr. landinu skipt í níu sýslumannsembætti. Þar undir er umdæmi sýslumanns í Vestmannaeyjum og segir að þar skuli vera staðsettur sýslumaður. Við lagabreytinguna 2014 var sýslumannsembættum fækkað niður í um þriðjung af því sem þau voru um síðustu aldamót. Þá kom tilkynning á vefsíðu dómsmálaráðuneytisins í lok janúar, sem kom okkur þingmönnum Suðurkjördæmis verulega á óvart, um að sýslumaðurinn á Suðurlandi yrði settur tímabundið í stöðu sýslumannsins í Vestmannaeyjum á meðan hann gegndi öðrum störfum. Í tilkynningu ráðuneytisins sagði að þær breytingar væru í samræmi við áform dómsmálaráðherra sem hún hefði kynnt bæði ríkisstjórn og sýslumönnum við stefnumörkun í stjórnsýslu ríkisins í héraði sem sýslumönnum hefði verið falin.
Ég vil spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hver þau áform eru nákvæmlega.
Í öðru lagi: Hverju má það sæta að embætti sýslumanns Eyjamanna er ekki auglýst þegar það liggur fyrir að sá sem gegnir því er tímabundið að fara til annarra starfa?