149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum.

[15:44]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á mikilvægi sýslumanna og sýslumannsembættanna og hlutverki sem sýslumenn gegna úti um land allt, sem er afar víðfeðmt og alls ekki niðurnjörvað í lögum. Sýslumenn eru handhafar framkvæmdarvalds í héraði og þeim er hægt að fela í sjálfu sér hvaðeina sem framkvæmdarvaldinu er falið með lögum að gera.

Fyrirspurn hv. þingmanns lýtur sér í lagi að þeim tímabundnu breytingum sem hafa verið á högum sýslumannsins sjálfs sem persónu um nokkurra mánaða skeið. Ég lýsti því við sýslumenn mjög snemma á síðasta ári, síðasta sumar, að ég hygðist fara í gagngera skoðun á verkefnum sýslumanna um allt land og tækifærum sem geta falist í flutningi verkefna til þeirra í auknum mæli. Það hefur nú verið reynt í áratugi en gengur víst illa hjá öðrum ráðuneytum en kannski dómsmálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu að einhverju leyti líka að fela sýslumönnum úti á landi ýmis verkefni. Þau tækifæri eru augljóslega að aukast mjög með tilkomu rafrænnar stjórnsýslu. Ég tel einboðið að við höfum það í huga þegar við hugum að sýslumannsembættunum og verkefnum þeirra úti um allt land.

Menn hafa nefnt það oft að þeir eigi rétt á því að hafa sýslumann á staðnum, að það skuli vera sýslumaður. Það er alveg rétt, það er kveðið á um ákveðin sýslumannsembætti í lögum, en það verður ekki gerð nein búsetukrafa á einstaka sýslumenn, ekki frekar en aðra starfsmenn hins opinbera og vonandi ekki heldur í einkageiranum. Það getur því auðvitað gerst tímabundið að menn færi sig yfir í annað sveitarfélag eða annað kjördæmi. Mér heyrðist hv. þingmaður hafa mestar áhyggjur af kjördæminu sem slíku eða hluta þess. Það verður ekki annað gert en að leyfa þeim það.

Ég fagna því hins vegar mjög að hafa fengið þennan sýslumann til liðs við mig út þetta ár til að greina (Forseti hringir.) þessi verkefni í samvinnu við sýslumannaráð.