um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég lít svo á að undir fundarstjórn falli líka hlutverk forseta við stjórn þingsins og m.a. í nefndum þingsins. Nú ber svo við að fá mál, eiginlega engin, frá stjórninni eru í atvinnuveganefnd, rétt að geta þess. Störf hvað varðar mál frá ráðherra í ríkisstjórn eru engin í nefndinni. Hins vegar eru þar ýmis mál sem þingmenn hafa flutt og m.a. mál um mótun klasastefnu frá Framsóknarflokknum, um búvörulög frá Viðreisn, til þess að koma í veg fyrir einokun á Íslandi, ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi o.fl., en þessi mál fást ekki rædd. Þau fá ekki einu sinni umfjöllun í nefndinni, engir gestir eru kallaðir til.
Þess í stað er verið að skipuleggja starf nefndarinnar frá þingstaðnum, frá nefndunum, sem er gott og blessað. Það er gott að fara í heimsóknir í fyrirtæki, opinberar stofnanir, en ég vil undirstrika að enn eru þar mál sem mælt hefur verið fyrir. Þau eru komin til nefndarinnar en einhverra hluta vegna fæst engin umfjöllun um þau. Ég vil beina því til forseta að fyrirmæli til nefndarformanna verði skýr hvað þetta varðar. Við þurfum líka að vinna vinnuna okkar hér.