149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[15:52]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég fagna því að fá tækifæri til að eiga orðastað við hæstv. ráðherra heilbrigðismála um helstu markmið og framtíðarsýn stjórnvalda varðandi fjarheilbrigðismál. Verkefnið sem heilbrigðisyfirvöld standa frammi fyrir, ekki bara hér á landi heldur víða um heim, er annars vegar að haga skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á þann hátt að hún nái sem best að nýta kosti fjarlækninga, og hins vegar að gera nýsköpun hátt undir höfði og hvetja og styðja við bakið á aðilum sem besta þekkingu og færni hafa á þessum málaflokki.

Í tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, sem hæstv. ráðherra mælti fyrir lok janúar, kemur því á óvart hversu litla áherslu má sjá þar á fjarheilbrigðisþjónustuna. Svo dæmi sé tekið af stöðu mála í löndum í kringum okkur má nefna að nyrst í Svíþjóð, í Lapplandi, er farið að bjóða upp á viðtöl við lækna í gegnum fjarbúnað og í kjölfarið verið að þróa lyfjasendingar með drónum. Svo getur maður séð fyrir sér hvernig það gengur á okkar ágæta eylandi.

Í Noregi er verið að skoða að bjóða þeim læknum sem fyrstir eru til að tileinka sér þessa nýju tækni sérstaka hvata og í Bretlandi er komin áætlun um að fyrir árið 2024 fari þriðjungur viðtala heilbrigðisstarfsfólks við sjúklinga sem ekki liggja inni á stofnunum, fram í gegnum slíkan búnað.

Ég spyr því hæstv. ráðherra fyrst um framtíðarsýn hennar varðandi fjarheilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Á Kirkjubæjarklaustri hefur verið unnið mikið brautryðjendastarf á sviði fjarheilbrigðisþjónustu. Fyrir réttu ári fjármagnaði heilbrigðisráðuneytið kaup á fjarlækningabúnaði fyrir Heilbrigðisstofnun Austurlands annars vegar og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hins vegar.

Ég spyr: Hvað varð eftir það? Það er búið að kaupa búnaðinn. Er búið að útbúa hvata fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að sinna sjúklingum í gegnum svona búnað? Er komin gjaldskrá fyrir þessa þjónustu? Má taka gjald fyrir svona þjónustu? Hvað með þjálfun starfsfólks?

Svo er það spurningin sem hefði kannski átt að koma fyrst: Hver stýrir þessari vinnu? Eru það staðbundnir aðilar á viðkomandi svæðum sem best þekkja til og vita hvaða þjónustu þarf, eða er þessu stýrt miðlægt frá Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, svo dæmi séu tekin?

Ég spyr hæstv. ráðherra: Hverjir eru helstu hvatar til fjarlækninga og af hverjum beinast þeir hvatar? Hvert er hlutverk heilbrigðisyfirvalda hér að mati hæstv. ráðherra? Heilbrigðisyfirvöld standa frammi fyrir miklum áskorunum um tæknimiðaða, fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þegar upp er staðið hlýtur markmiðið sem fyrr að vera að tryggja gæði og aðgengi þjónustunnar og nýtingu fjármagns. Áhersla á nýsköpun og fjölbreytni við þessar aðstæður er lykilatriði enda stendur í stjórnarsáttmála sitjandi ríkisstjórnar, með leyfi forseta:

„Efla á nýsköpun í heilbrigðismálum þannig að Ísland verði í fremstu röð og nýti sér nýjustu tækni á þessu sviði, þar með talið fjarlækningar.“

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra nánar út í þessa fyrirætlan: Hvernig hyggst hún gera nýsköpun sem tengist fjarlækningum hátt undir höfði? Hvar sér ráðherra fyrir sér að þessi nýsköpun eigi sér helst stað?

Nýlega undirritaði ráðherra fyrirmæli landlæknis um upplýsingaöryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu. Ekki er dregið í efa mikilvægi þess að öryggi sé tryggt enda liggja miklir hagsmunir undir. Mig langar hins vegar að gera athugasemd við það sem lesa má úr fyrirmælunum, þ.e. að gerður er greinarmunur á kröfum til þeirra sem nýta fjarheilbrigðisþjónustu hjá hinu opinbera, t.d. þeirra sem nota lokað kerfi hjá Landspítala og heilsugæslunni, og aðila sem standa utan þessara kerfa. Þar er reyndar oft um að ræða aðila sem gengið hafa á undan með stofnun sprotafyrirtækja og eru farnir af stað með eigin starfsemi en hafa reyndar beðið ansi lengi eftir umræddum reglum til að komast lengra í að þjónusta íslenskan heilbrigðismarkað. Hér á ég t.d. við mismunandi kröfur hvað varðar aðgengismál eða auðkenniskröfur þótt reyndar sé óljóst hvernig sú niðurstaða fæst að ríkisrekin kerfi séu öruggari en önnur.

Nú er notkun rafrænna skilríkja ekki almenn hér á landi og samkvæmt fréttum virðist staðreyndin vera sú að ungt fólk veigri sér frekar við að taka upp þau rafrænu skilríki sem fyrirtæki á borð við Auðkenni hafa lagt fram eða kynnt.

Ég spyr: Verður það sett sem skilyrði ef fólk hyggst nýta sér þessa nýjung að það útvegi sér að rafræn skilríki í stað þess að skrá sig t.d. inn í gegnum Ísland.is eða aðra miðlæga grunna? Verður þá sérstaklega gert sem skilyrði að fólk eigi og noti rafræn skilríki ef það hyggst nýta sér fjarheilbrigðisþjónustu utan ríkisrekna kerfisins?

Að lokum spyr ég hæstv. ráðherra, vegna þess að fréttir berast af því að opinberar stofnanir á borð við Sjúkratryggingar, Landspítala og Sjúkrahús Akureyrar séu farnar að forrita eigin kerfi: Er það sé í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um eflingu nýsköpunar í heilbrigðismálum? Á sú nýsköpun fyrst og fremst að eiga sér stað innan stofnana ríkisins?