fjarlækningar.
Virðulegur forseti. Fjarheilbrigðisþjónusta hefur verið þróuð víða um heim undanfarna áratugi og rannsóknir hafa sýnt ótvíræðan ávinning sem snýst um lífsgæði og heilsu þeirra sem ná að nýta sér þjónustuna og þetta dregur að jafnaði úr kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Flest tækifæri á þessu sviði eru enn ónýtt á Íslandi þótt aðstæður hrópi á allar tiltækar lausnir í heilbrigðisþjónustu, ekki síst á landsbyggðinni. Við búum fá í stóru landi. Það er strjálbýlt, samgöngur erfiðar og langvarandi mönnunarvandi og ekkert útlit fyrir viðsnúning, því miður. Það ríkir stefnuleysi í málaflokknum.
Virðulegur forseti. Það felast stórkostleg tækifæri í fjarheilbrigðisþjónustu, ekki sem valkosti sem kemur í stað heilbrigðisstarfsmanna á vettvangi heldur til að auka gæði þjónustunnar, bæta starfsumhverfið og gera það fýsilegra að starfa á þeim svæðum þar sem sérfræðingar eru ekki á hverju strái. Fagfólk getur með þessari þrautreyndu tækni fengið aukinn stuðning frá sérhæfðu fagfólki til að meta sjúklinga og meðhöndla, auka færni sína og þekkingu. Þá eru ónefndir þeir miklu möguleikar til að auka öryggi aldraðra í heimahúsum, bæði í borg og á landsbyggðinni. En það þarf verk og vilja stjórnvalda og vilja fagfólks að sjálfsögðu og þar kunna að vera einhverjar hindranir sem þarf að yfirstíga.
Í tillögum starfshóps ráðherra frá því í ágúst eru sett skýr markmið og m.a. tímasett aðgerðaáætlun. Ég spyr því ráðherra: Er eitthvað áþreifanlegt að gerast? Samkvæmt tímaáætlun á allt að vera í fullum gangi við innleiðingu á þessu ári en lítil hreyfing virðist vera á þessum málum, a.m.k. í mínu kjördæmi. Í byggðaáætlun er gert ráð fyrir að veittar verði í þetta verkefni 140 millj. kr. á fimm ára tímabili, sem heitir að sýna lit og er engan veginn nóg ef vel á að ganga.
Ég spyr enn fremur: Verður bætt í þetta fjármunum? Og er ráðherra yfir höfuð full alvara með þetta verkefni?