fjarlækningar.
Herra forseti. Ég þakka þessa umræðu og málshefjanda. Fjarþjónusta á heilbrigðissviði hefur ekki verið áberandi í opinberri umræðu hér á landi, en síðustu ár hefur orðið breyting þar á og er það jákvætt. Það þarf að efla opinbera umræðu um gildi fjarþjónustu í lækningum almennt. Könnun á fjarlækningum meðal heimilislækna á Íslandi sýnir að um 80% svarenda hafa áhuga á að nýta sér fjarlækningar í starfi. Læknarnir voru beðnir um að tilgreina hvað helst stæði í vegi fyrir því að taka upp fjarlæknaþjónustu og nefndu um 60% þeirra vöntun á fullnægjandi tækjabúnaði og rúmlega 33% tilgreindu fjárskort. Mikilvægt er að við nýtum okkur tæknina í þessum efnum eins og kostur er og horfum til fleiri þátta heilbrigðisþjónustu eins og sálfræði- og heilsugæsluþjónustu.
Fjarheilbrigðisþjónustan hefur verið starfrækt á Kirkjubæjarklaustri með góðum árangri og hefur þar verið unnið ákveðið frumkvöðlastarf í þessum efnum. Þar geta m.a. hjúkrunarfræðingar sem eru á vakt sent upplýsingar til sérfræðinga annars staðar á landinu og þannig boðið skjólstæðingum upp á skjóta og örugga þjónustu á öllum tímum.
Herra forseti. Ég vil beina sjónum sérstaklega að talmeinaþjónustu. Fjarþjónusta talmeinafræðinga hefur ekki verið rannsökuð hér á landi svo neinu nemur, en erlendis hefur hún verið mikið rannsökuð og benda niðurstöður til að sú þjónusta sé árangursrík og ekki síðri en þjónusta augliti til auglitis. Einnig sýna þær rannsóknir að þjónustuþegar eru ánægðir með fjarþjónustuna og telja mikla hagræðingu fólgna í að þurfa ekki að aka langar vegalengdir eftir þjónustu talmeinafræðings. Með þessu er því hægt að hjálpa fólki sem á erfitt með að ferðast langa vegu til að fá þjónustu talmeinafræðings. Með fjarþjónustu er átt við að talmeinafræðingur þjálfar skjólstæðinga sína í gegnum fjarfundabúnað í stað þess að hitta þá augliti til auglitis. Skjólstæðingurinn fær þá þjálfunina í gegnum tölvu í skólanum.
Það þarf að efla opinbera umræðu um gildi fjarþjónustu talmeinafræðinga. (Forseti hringir.) Hér á landi starfa flestir talmeinafræðingar á höfuðborgarsvæðinu og þeir sem starfa á landsbyggðinni þurfa að fara (Forseti hringir.) um langan veg. Það er því mjög brýnt að fjarþjónusta talmeinafræðings sé skoðuð í þessu samhengi. Hún er kjörin leið til að bæta þessa mikilvægu þjónustu á landsbyggðinni.