fjarlækningar.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson, og hæstv. ráðherra Svandísi Svavarsdóttur fyrir að taka þessa mikilvægu umræðu hér. Það er gríðarlega mikilvægt að við fáum tækifæri til að ræða framþróunina og alla þá uppbyggingu sem orðið getur í heilbrigðiskerfinu með nýrri tækni og tækifærum. Við höfum séð slíkt spretta upp á síðustu árum þar sem fólk hefur lagt sitt af mörkum til að bjóða framúrskarandi þjónustu fyrir fólkið í landinu.
Hér hefur verið komið inn á hugmyndir sem hafa orðið að veruleika, eins og á Kirkjubæjarklaustri þar sem læknir og hjúkrunarfræðingur bjóða upp á betra aðgengi að heilsugæslu með fjarheilbrigðisþjónustu, sem getur síðan einnig nýst sérfræðilæknum. Það er einmitt þessi bætta þjónusta og tækifærin sem þar búa sem gleymast stundum í umræðunni þegar við ræðum kerfið og kröfurnar sem við þurfum að gera. Þá gleymist þjónustan fyrir fólkið okkar.
Fleiri framúrskarandi nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðisþjónustu hafa sprottið upp sem mætt hafa kröfu fólks í heilbrigðisþjónustu út frá veruleika þess, veruleika nýrrar tækni og öðruvísi þjónustu. Við megum ekki stuðla að því að þessi fyrirtæki eigi í vanda eða samskiptaörðugleikum við ríkið af því að við ætlum að gera of miklar kröfur til þeirra sem bæta aðgengi með hjálp tækninnar, meiri en til þeirra sem þegar sinna þessari þjónustu augliti til auglitis, en ekki í gegnum tæknina.
Það væri gaman að heyra frá hæstv. ráðherra hvort það séu einhverjar hugmyndir uppi um að fá tilraunaverkefni inn í heilbrigðisþjónustuna til að nýta þessa tækni, hvort við ætlum að prófa slíkt eftir að starfshópurinn hefur lagt fram niðurstöðu, því að án tilraunaverkefna verða engir þróunarsjóðir til. Þá er aldrei leyft að skoða sem betur má fara, hvaða kröfu eðlilegt er að gera, hvaða þekkingu hægt er að nýta sem búin hefur verið til (Forseti hringir.) af fólki sem lagt hefur sitt af mörkum til að bæta þjónustuna. Við þurfum að mæta fólki þar sem það getur (Forseti hringir.) fengið þjónustu með auðveldum hætti, skjótari úrlausnum og með minni kostnaði.