fjarlækningar.
Forseti. Eins og hefur komið fram í umræðunni er fjarheilbrigðisþjónusta mikilvæg viðbót fyrir heilbrigðisþjónustu og fyrir samfélagið, en mig langar að fókusera aðeins á hindranir, hvort stærstu hindranir í nýsköpun hér á landi séu oft, því miður, viðbrögð stjórnvalda. Tregða við að innleiða nýjungar, eins og nauðsynlegar fjarþjónustulausnir, hefur reynst brautryðjendum erfið. Stundum virðist sem kröfur til fjarlækninga séu meiri en kröfur til hefðbundinnar læknisþjónustu. Gott dæmi um slíkt eru nýleg fyrirmæli landlæknis um upplýsingaöryggi við veitingu fjarlækningaþjónustu. Þar er gerð krafa um að notendur þjónustunnar auðkenni sig með rafrænum skilríkjum sem fjölmargir einstaklingar hafa ekki aðgang að. Sem dæmi getur ungt fólk undir 18 ára aldri ekki auðkennt sig án samþykkis og aðkomu foreldra. Hvað með fólk sem ekki hefur íslenska kennitölu? Hvað með þá hópa fólks sem kæra sig hreinlega ekki um að nota rafræn skilríki sem eru auk þess þjónustuð af einu fyrirtæki, Auðkenni, sem er einkafyrirtæki og virðist hafa einokunarstöðu á markaði um rafræn skilríki? Hvað réttlætir íþyngjandi auðkenniskröfur sem þessar?
Engin krafa er gerð um skilríki af neinu tagi þegar fólk mætir á heilsugæslu, sjúkrahús, til sálfræðings eða jafnvel þegar fólk sækir sér ráðgjöf hjá heilbrigðisstofnun símleiðis. Það verður engan veginn séð að eina tæknilega lausnin til að uppfylla skilyrði persónuverndarlaga í þessu sambandi séu rafræn skilríki. Þegar horft er til upplýsingaöryggis væri eðlilegra að skilja á milli aðgangs sjúklings annars vegar og heilbrigðisstarfsmanns hins vegar. Sjúklingur hefur alla jafna ekki aðgang að eigin sjúkraskrám í gegnum fjarþjónustubúnað og er því eðlismunur á þessu tvennu í skilningi persónuverndarlaga. Hvers vegna er gerð ströng krafa á sjúklinga um rafræn skilríki sem skilyrði vilji þeir nýta sér fjarlækningaþjónustu?
Forseti. Ein helsta forsendan fyrir útbreiðslu rafrænnar heilbrigðisþjónustu er óheft aðgengi markhópsins að þjónustunni. Það væri gagnlegt að heyra frá hæstv. heilbrigðisráðherra hvort hún telji þörf á að eiga í betra samráði við frumkvöðla í fjarlækningaþjónustu hér á landi til að tryggja að reglur sem settar eru um starfsemi þeirra sé ekki íþyngjandi og til þess fallnar að standa í vegi fyrir innleiðingu þessarar nýsköpunar, þessarar þjónustu. Það væri grátlegt að missa þetta mikilvæga frumkvöðlastarf úr landi.