fjarlækningar.
Virðulegur forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson, fyrir þessa umræðu og hæstv. heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, fyrir hennar innlegg í umræðuna. Fjarlækningar eru ekki nýjar af nálinni á Íslandi eða í nágrannalöndum okkar. Þær hafa verið stundaðar hér með góðum árangri.
Árið 1992 fór t.d. af stað tilraunaverkefni með sendingu röntgenmynda frá sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum til aflestrar hjá röntgenlæknum á Landspítala, og fleiri sjúkrahús bættust við á næstu árum með bættu fjarskiptasambandi. Þingmönnum hefur verið tíðrætt um Kirkjubæjarklaustur, sem hefur verið mjög framarlega í þessum málum og riðið á vaðið að frumkvæði heimamanna.
Fjarlækningar er samheiti yfir mjög ólíka hluti eða allt frá einu símtali og í það að aðstoða við mjög flóknar aðgerðir og sjálfvirkni lækningatækja. Einn af hvötunum til þess að við Íslendingar bætum okkur í þessum málum eru erfiðleikar við mönnun heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni. Hins vegar má ekki gleyma því að þótt tæknin verði góð og hægt verði að bæta greiningu og meðferð með aðstoð fjarlækninga þarf fagfólk í mörgum tilfellum á báða enda. Þannig að þörfin fyrir mönnun flyst til og starfsmaðurinn nýtist væntanlega betur. Ný tækni getur gert sjúklingunum kleift að vera jafnvel í sambandi við lækninn sinn eða göngudeild í gegnum app í símanum GSM-sendingar o.s.frv.
Þannig er meðferðaraðila gert viðvart ef meðferð gengur ekki sem skyldi eða atvik koma upp sem bregðast þarf við. Einnig hafa fræðslufundir eða svokallaðir klínískir fundir verið taldir með í umræðunni. Það er mjög mikilvægur vettvangur fyrir sí- og endurmenntun heilbrigðisstarfsfólks, sérstaklega þá sem starfað geta í litlum teymum. Fjarlækningar geta dregið úr þörf fyrir komu á göngudeildir til eftirlits og eftirfylgdar og jafnvel dregið úr kostnaði samfélagsins vegna ferðakostnaðar milli landshluta. Fjarlækningar eru klárlega komnar til að vera og við þurfum að efla okkur á því sviði. Hins vegar koma þær ekki í stað bráðaþjónustu á vettvangi. Þar þurfum við að tryggja mönnun um allt land.