fjarlækningar.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Það er gríðarlega mikilvægt að við nálgumst umræðuna út frá víðu samhengi. Við sjáum fjarheilbrigðisþjónustu sem ákveðið tækifæri fyrir m.a. landsbyggðina, ekki síst varðandi þá þætti að við vitum að þegar fólk stendur frammi fyrir búsetuvali er aðgengi að þjónustu ofarlega, efst á lista, sérstaklega þegar kemur að málefnum heilbrigðismála og menntamála.
Ekki síður er þetta náttúrlega áhugavert tækifæri líka fyrir sérfræðinga að hafa allt landið undir, að geta búið annars staðar en á suðvesturhorninu en veitt sömu þjónustu. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að allir hafi aðgengi að tækninni og að ekki verði byrjað að loka á tilraunir vegna einhverrar hræðslu við nýja tækni og nýja þróun sem enginn á síðan að vera hræddur við. Það skiptir líka máli að við Íslendingar getum tekið hröð skref í sameiningu þekkingar og aðgengi að fagmennsku sérfræðinga. Við megum ekki líta á þessa byltingu sem við stöndum frammi fyrir með fjarheilbrigðisþjónustuna sem ógnun, heldur miklu frekar sem gríðarlega stórt tækifæri.
Ég segi núna: Allir verða að fara upp á dekk. Við verðum að spyrja okkur hvort við séum að nýta alla þræði til að byggja upp fjarheilbrigðisþjónustu og nýta um leið fjármagnið eftir bestu fáanlegu leiðum. Getur hið opinbera til að mynda nýtt framlag einkaframtaksins, þeirra sprotafyrirtækja, nýsköpunarfyrirtækja sem nú þegar eru farin af stað og eru búin að afla sér ómældrar þekkingar og reynslu?
Ég vil undirstrika að um leið og við getum tekið þessi skref varðandi fjarlækningar sem geta fært okkur í forystu þekkingarsamfélags, líka á sviði fjarheilbrigðisþjónustu, þarf skýra sýn og pólitíska forystu. Við megum ekki nálgast málið þannig að við byggjum upp hindranir, múra eða veggi, heldur eigum við miklu frekar að opna kerfið og nýta alla krafta hvort sem eru innan opinbera kerfisins eða hjá sjálfstætt starfandi aðilum.