149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[16:19]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Nú eru líklega í kringum 19 ár síðan sá sem hér stendur tók þátt í því sem þá var kannski kallað tilraunaverkefni undir stjórn ágæts forstjóra heilbrigðisstofnunar úti á landi sem þá var. Það gekk bara bærilega og verkefnið var síðan flutt á annan stað og gekk líka vel þar. Þetta er því ekkert nýtt sem við erum að tala um. Við erum ekki að tala um eitthvað sem er tilraunaverkefni eða eitthvað sem við eigum að velta fyrir okkur. Þetta er það sem við eigum að gera, þetta er hægt.

Það sem er sérlega mikilvægt í þessu eru kannski í grundvallaratriðum tvö, þrjú atriði. Í fyrsta lagi þurfum við að huga að allri menntun heilbrigðisstarfsfólks, að það að sinna þessari tegund þjónustu sé hluti af þeim pakka sem við bjóðum upp á þegar einhver ákveður að mennta sig til heilbrigðisstarfa. Það er gríðarlega mikilvægt vegna þess að slík þekking kemur ekki af sjálfu sér. Í öðru lagi finnst mér líka mjög mikilvægt að við hugsum ekki fjarheilbrigðisþjónustu fyrst og fremst sem viðbrögð við skorti á þjónustu eða viðbrögð við skorti á starfsfólki, heldur eigum við að hugsa þetta fyrst og síðast sem tækifæri til að bæta þjónustu, til að bæta þjónustuna við þá sem hana þurfa.

Í umræðunni hefur komið fram að persónuverndarmál eru þarna undir og þau eru mikilvæg og þau verkefni þarf að leysa. Og það á bara að leysa þau. Við eigum ekki að láta þau vera hindranir. Við eigum að finna á þeim lausnir. Hægt er að fara margar leiðir og við erum þegar byrjuð að vinna á mörgum sviðum í því sambandi. Eins og hefur komið fram í umræðunni leysum við ekki öll mál í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu, en það er mjög margt sem getur komið til. Til að mynda þjónusta (Forseti hringir.) á milli landa, ekki bara á milli landshluta.