149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[16:21]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að koma þessari mikilvægu umræðu á dagskrá og sömuleiðis hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svör hennar.

Í grunninn er um jafnréttismál að ræða, þ.e. að jafna aðgengi að sérfræðingaþjónustu án tillits til búsetu. Með eflingu fjarheilbrigðisþjónustu eru dýrmæt tækifæri til þess að vinna markvissar að veitingu sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu, bættu aðgengi að þjónustu og aukinni hagkvæmni og í raun líka skilvirkni.

Þá eru einnig tækifæri til hagræðis fyrir sjúklingana sjálfa, sem er ekki síður mikilvægt og birtist m.a. í lægri ferðakostnaði og sömuleiðis minni fjarveru frá fjölskyldu og minna vinnutapi sem oft er töluvert þegar ferðast þarf umtalsverðar vegalengdir til að hitta sérfræðilækna. Staðreyndin er að íslenska þjóðin er að eldast sem þýðir aukna þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og þar skiptir aðgengi að þjónustunni miklu máli. Staðreyndin er líka sú að rannsóknir á heilsufari Íslendinga hafa sýnt að fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins býr við lakara heilsufar, sem er mikið áhyggjuefni. Það er því alveg ljóst að við þurfum að bæta þjónustuna.

Fjarheilbrigðisþjónusta er mikilvægur hlekkur í því og eins og fram hefur komið er tæknin til staðar en enn á eftir að taka mörg skref og m.a. aðlaga kerfið og tryggja fjármögnun og fjármögnunarferla. Í því samhengi vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að nýta tækifærið og hugsa aðeins út fyrir boxið og íhuga hvort e.t.v. sé ekki rétt að hætta að nota sama excel-skjalið fyrir höfuðborgina og fyrir landsbyggðina yfir höfuð.

Við erum fámenn þjóð sem býr í stóru landi og það hefur ýmsan kostnað í för með sér. Það er löngu tímabært að horfa öðruvísi á veitingu þjónustu á landinu til þess einmitt að nýta fjármuni í heilbrigðisþjónustuna sem best með það að markmiði að tryggja bestu mögulegu þjónustu fyrir almenning hvar sem er á landinu.