149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[16:23]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson og hæstv. ráðherra fyrir að taka þetta mál upp. Ég hef fylgst með þessari umræðu af athygli vegna þess að ég er alveg blankur í þessu máli. Ég fylgist með af áhuga og athygli vegna þess að ég er ekki vel að mér um þetta.

Það hefur komið fram í umræðunni að þetta er ekkert nýtt af nálinni. Hv. þm. Ólafur Gunnarsson var að tala um að það væru 19 ár síðan hann kom að þessu máli, þessari vinnu, og kannski eitthvað lengra síðan þetta hófst hér. Þetta er orðinn langur tími og þróunin hefur verið í gangi en greinilega ekki komist til skila til mín, ég hafði ekki hugmynd um það. Ég var meira svona í andaglasi og á miðilsfundum, það segir nú kannski svolítið um aldurinn á mér.

Þetta er mjög athyglisvert og tæknin er einhvern veginn allsráðandi í þessari umræðu og möguleikar í þessum efnum eru vegna tækniframfara. Það er mjög gleðilegt að sjá hvað hægt er að gera í sambandi við tæknina. Samt sem áður kemur mér í hug, og það hefur komið fram hér í ræðum, að við búum í strjálbýlu landi og erfitt hefur reynst að manna læknisþjónustu á landsbyggðinni, og gerðar hafa verið alls konar tilraunir með það. Það mun aldrei breytast að það að hitta lækni augliti til auglitis er kannski það sem er heilladrýgst þegar upp er staðið. Þetta er mjög áhugaverð þróun og gaman að fylgjast með og ég mun gera það hér eftir.