149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[16:26]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu. Þegar ég heyri orðið fjarlækningar kemur mér eiginlega ekkert í hug nema tækifæri. Þetta eru tækifæri sem við þurfum að vanda okkur við að nýta og kjörið tækifæri í þeirri þróun sem hefur átt sér stað, hvernig veiting heilbrigðisþjónustu hefur breyst, sérhæfingin sem við höfum mikið rætt, vöntun á mannskap til að sinna störfunum og ekki síst aðgengi, hvernig hægt er að tryggja sem best aðgengi.

Þarna held ég að sé komið tækifæri til að nýta starfskrafta þeirra sem sinna heilbrigðisþjónustu sem allra best og auka teymisvinnu og annað slíkt. Við erum oft að ræða hér hve erfitt er að fá lækna til starfa úti á landi eða fá þá til að manna sérhæfð störf hér á landi. Þarna er komið gullið tækifæri fyrir lækninn að flytja heim í gamla héraðið sitt og sinna sérhæfingu sinni um allt land frá stað úti á landsbyggðinni og þess vegna sinna sérhæfingu sinni um allan heim þaðan. Þetta getur verið í báðar áttir, ekki bara til þess að auka aðgengi að þjónustunni heima í héraði heldur er líka hægt að veita þjónustuna þaðan eftir því um hvaða þjónustu er að ræða.

Ég vil leggja áherslu á það hér að við þurfum að hugsa samhliða þessu, eins og við höfum oft rætt, um mikilvægi uppbyggingar á bráðaþjónustu utan spítala. Auka þarf menntun og hæfileika þeirra sem sinna sjúkraflutningum, þessari bráðaþjónustu, á vettvangi, af því að ferðamönnum hefur fjölgað. Slíkt starfsfólk, ef hlutirnir eru hugsaðir frá upphafi, getur orðið til að vera á hinum enda fjarlækninganna, þannig að hægt sé að nýta það á heilsugæslu til aðstoðar við sérfræðingana. Það þarf að nýta starfsfólkið, bæði á vettvangi og í heilsugæslunni.