149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[16:28]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Virðulegi forseti. Í þingsályktunartillögu sem hæstv. heilbrigðisráðherra lagði fram fyrir nokkrum vikum var innihaldinu fagnað nokkuð einróma af þingheimi. Er það vel því að um mikilvægt framfaraskref er að ræða með framlagningu ályktunarinnar. Hún er til marks um ákveðna langtímasýn og framtíðarsýn og í 2. mgr. ályktunarinnar er orðið framtíðarsýn beinlínis notað í þessu samhengi.

Ég segi nú bara: Loksins. Þetta er nauðsynlegt skref ef við eigum að njóta skilvirks og vandaðs heilbrigðiskerfis hérlendis. Þeir mikilvægu möguleikar sem fjarlækningar fela í sér hafa örugglega ekki farið fram hjá neinum hér í dag. Eins kemur vilji til fjarlækninga fram í stjórnarsáttmálanum sjálfum. Með hlutfallslega mjög litlum kostnaði opnast með fjarlækningum fjölmörg tækifæri til nýsköpunar, bæði innan heilbrigðiskerfisins sjálfs sem og tæknigeirans, fyrir hugbúnaðarþróun o.s.frv. Þarna geta skapast störf.

Ég vil nota tækifærið til að tengja þetta líka aðeins umræðunni, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason gerði hér rétt áðan, um brothættar byggðir. Ég vil leggja til að við sem störfum hér séum með ákveðin fjarlækningargleraugu þegar við nálgumst önnur vandamál sem snúa að þeirri vinnu sem við vinnum hér inni. Það er hægt að tengja þetta miklu meira saman en fólk heldur kannski í fyrstu. Ég hef minnst á öppin og hversu mikið það tengist tækniþróun og hugviti, allir möguleikar sem við höfum þar.

Í óundirbúnum fyrirspurnum var einmitt rætt um skort á hjúkrunarrýmum sem hefur verið endurtekið viðkvæði hér í þingsal síðustu ár. Þá mætti líka spyrja hvort fjarlækningar skapi þar tækifæri. Sjúklingar sem þurfa ekki intensífa umönnun geta kannski sótt dagrými í staðinn fyrir almenn rými. Það eru alls konar slíkir hlutir sem hægt er að tengja beint. Eins var minnst á menntun hér áðan. Fjarmenntunarmöguleikar geta verið á báða vegu eins og hv. þingmaður kom inn á rétt áðan. Ég fagna þessari umræðu og þakka málshefjanda fyrir hana.