fjarlækningar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt fyrir góðar umræður. Ég spái því að þetta verði ekki í síðasta skipti sem við ræðum þennan málaflokk.
Það sem hægt er að taka með sér úr þessu er að við erum sammála um mikilvægi fjarheilbrigðisþjónustu almennt. Það hefur verið rætt hér um landsbyggðina og það gengur í báðar áttir, sannanlega, þjónusta sem landsbyggðin getur þegið og þjónusta sem landsbyggðin getur veitt. Þetta er líka mikilvægt fyrir þéttbýlið vegna þess að við erum ekkert of vel haldin hér af aðgengi okkar að heilbrigðisþjónustunni, sérstaklega hvað tímann varðar.
Starfsfólk. Það hefur komið fram að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu býr við mikla hættu á kulnun í starfi og kulnun er ekki síst afleiðing af álagi og tilbreytingarleysi í störfum. Yfirvöld sjá fram á möguleika til að bæta þjónustuna. Frumkvöðlar. Ísland þarf nýsköpun og ef einhvers staðar er rétt að segja að hér getum við verið í fararbroddi þá er það þegar kemur að nýsköpun í fjarlækningum í okkar strjálbýla landi, okkar strjálbýla netvædda landi með vel menntað heilbrigðisstarfsfólk. Þetta er gríðarlega sterkt tæki til að tikka í öll þessi mikilvægu box.
Það er samt eitt sem er ástæða til að vara við og mig langar að gera að lokaorðum mínum, það er sú lenska íslenskra stofnana og íslenskra ráðamanna, lenska kerfisins, að þurfa að finna upp hjólið. Ég held að akkúrat núna þurfum við að varast það að beina kröftunum og fjármagninu fyrst og fremst í það að sérsmíða eitthvert kerfi sem við sitjum svo uppi með af því að það verður of dýrt að snúa af þeirri braut. Fegurðin í þeirri þróun sem er að eiga sér stað víða, að nota netið, er sú að kerfin eru ekki svo mikilvæg heldur forritin og það sé hægt að hreyfa sig hægt. Umfram allt þarf sú þjónusta sem á að veita í gegnum fjarlækningar að vera skilgreind í gegnum stefnumótun. Hvað er það sem við ætlum að fá út úr þessu? Hvernig þjónustu viljum við veita fólki? Hvernig ætlum við að jafna aðgengi? Hvernig ætlum við að veita starfsfólki tækifæri (Forseti hringir.) á að veita bestu mögulegu þjónustuna? Við gerum það ekki með því að niðurnegla núna í upphafi eitthvert kerfi (Forseti hringir.) sem mun síðan ráða ferðinni um ókomin ár. — Ég þakka umræðuna.