149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

fjarlækningar.

[16:36]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir góða umræðu. Hér eru nokkrir punktar í lokin.

Í fyrsta lagi vil ég taka undir það sem hefur komið fram hjá nánast öllum sem hafa tekið til máls og það er hversu mikil tækifæri eru í tæknilausnum til að bæta þjónustuna og jafna aðgengi. Það er lykilatriði.

Í öðru lagi vil ég segja að það er mjög mikilvægt við innleiðingu tækni að horfa með heildstæðum hætti á málið þar sem öryggi er í forgrunni án þess að reistar séu tæknilegar girðingar sem mögulega takmarka samstarf, ég tek algjörlega undir þau sjónarmið. Það er líka í samræmi við niðurstöðu hópsins sem ég vék að áðan.

Ég vil líka segja að innleiðing og framkvæmd fjarheilbrigðisþjónustu snýst ekki bara um hagnýtingu nýrrar tækni heldur ekki síst um framsýna stjórnendur, kjark til skipulagsbreytinga, mótun á nýju verklagi og vinnuflæði þar sem þjónusta við sjúklinginn er í forgrunni. Ég vil taka undir það sem hv. málshefjandi nefnir að þetta skiptir líka máli til að vera með sem mest spennandi starfsumhverfi og ögrandi möguleika til að þróa sig í starfi. Þetta er þess vegna líka mönnunarmál. Breytingarnar krefjast í raun og veru aðkomu allra sem í hlut eiga og góð samvinna er þar mjög nauðsynleg til árangurs.

Hér komu nokkrir inn á það að við ættum að gæta okkar á því að nota ekki sömu excel-skjölin fyrir landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið. Ég er mjög meðvituð um það. Núna er okkar nýjasta verkefni Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu þar sem við gætum að því að allir möguleikar séu undir og gætum líka að því þegar við erum að fara yfir greiðslumódel heilsugæslunnar að það gildir ekki endilega það sama um höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina.

Einnig var nefnd fyrirmyndin frá Grænlandi. Grænlendingar eru komnir mjög langt í því að nýta sér þjónustu af þessu tagi og þróa hana. Við eigum og höfum verið í samstarfi á vestnorrænum vettvangi (Forseti hringir.) að fjalla sérstaklega um reynslu Grænlendinga af fjarheilbrigðisþjónustu og munum þróa það áfram.

Enn aftur vil ég þakka fyrir góða umræðu, virðulegi forseti.