rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu dvalarleyfa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að koma hér og ræða fyrirspurn mína um rafræna stjórnsýslu Útlendingastofnunar. Fyrirspurn þessi var upphaflega lögð fram um miðjan nóvember en síðan þá hefur Ríkisendurskoðun skilað skýrslu um málsmeðferð og verklagsreglur Útlendingastofnunar sem unnin var að beiðni Alþingis. Ein af meginniðurstöðum þeirrar skýrslu er að ríkisendurskoðandi telur að bæta megi áætlanagerð og skilvirkni í meðferð umsókna hjá Útlendingastofnun auk þess að stytta málsmeðferðartíma með því að innleiða betri upplýsingakerfi og taka upp rafrænt umsóknarferli. Þessi skýrsla hefur verið til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og eftir þá umfjöllun tel ég enn brýnna en áður að ræða þessi mál hér í þingsal við ráðherra.
Mikilvægt er að hafa í huga að frá árunum 2009–2017 fjölgaði handhöfum dvalarleyfa um 134% auk þess sem fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd meira en þrítugfaldaðist. Þessar breytingar hafa kallað á aukin umsvif Útlendingastofnunar en hefur oftast verið mætt með átaksverkefnum með tímabundnum fjárveitingum til málefna umsækjenda um alþjóðlega vernd, en ekki hefur verið farið í nauðsynlega styrkingu innviða til að stuðla að hagkvæmni og skilvirkni til lengri tíma litið.
Öllum umsóknum til Útlendingastofnunar er nú skilað á pappír, hvort sem þær varða dvalarleyfi, vegabréfsáritanir, íslenskan ríkisborgararétt eða alþjóðlega vernd. Þetta eru þúsundir umsókna. Starfsfólk stofnunarinnar færir svo upplýsingar af umsóknareyðublöðum handvirkt inn í upplýsingakerfi, sem er tímafrekt, óskilvirkt og skapar hættu á villum og mistökum. Þá hafa umsækjendur enga möguleika á að fylgjast með stöðu eða afdrifum umsóknar meðan á málsmeðferð stendur. Þar fyrir utan eru gallar á upplýsingakerfum þannig að starfsmenn hafa ekki heldur góða yfirsýn yfir stöðu mála eða möguleika til að miðla upplýsingum.
Samkvæmt fjárlögum ársins 2019 styðja markmið og aðgerðir í málaflokki 10 við nýja og bætta gagnagrunna og upplýsingakerfi þeirra er starfa að málefnum útlendinga. Þá hefur Útlendingastofnun sjálf skilgreint rafræna stjórnsýslu sem eitt af sínum mikilvægu verkefnum. Samt sem áður er ekki hægt að skilja upplýsingar sem fram komu á fundum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar á annan hátt en að enn sé óleyst hvenær eða hvernig verði farið í þetta verkefni.
Því spyr ég: Er undirbúningur að rafrænni stjórnsýslu við afgreiðslu dvalarleyfa og annarra leyfa hjá Útlendingastofnun hafinn? Hefur verið lagt mat á kostnað við að innleiða rafræna stjórnsýslu á þessu sviði? Hvaða kostir gætu fylgt slíkri innleiðingu, annars vegar fyrir stjórnvöld og hins vegar fyrir notendur þjónustunnar?