rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu dvalarleyfa.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina um rafræna stjórnsýslu, sem er mér mjög hugleikin í öllum kimum dómsmálaráðuneytisins, að koma henni á í ríkari mæli. Ég tel tvímælalaust að fjölmörg tækifæri séu til staðar til að gera málsmeðferð skilvirkari og ódýrari hjá Útlendingastofnun með rafrænni afgreiðslu, sérstaklega á sviði dvalarleyfa og ríkisborgararéttar, og um leið fyrst og fremst að bæta þjónustuna við þá viðskiptavini Útlendingastofnunar sem þangað leita. Markmiðið er að hægt verði að leggja fram umsóknir rafrænt og fá þær samþykktar séu þá öll skilyrði að öðru leyti uppfyllt án þess að sérstök málsmeðferð á pappír sé viðhöfð. Það er auðvitað aukin þjónusta frá því sem nú er.
Það er til skoðunar að efla upplýsingakerfi stofnunarinnar þannig að auðveldlega megi ná fram tölfræðiupplýsingum, sem aftur auðveldar stjórnvöldum og þinginu, fjárveitingavaldshafanum, alla áætlanagerð og eftirfylgni með meðferð mála. Útlendingastofnun og dómsmálaráðuneyti hafa fylgst náið með þróun tæknilegra lausna og ég vonast til þess að formleg vinna við undirbúning slíkra breytinga geti hafist á næsta ári.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Útlendingastofnun frá því í nóvember 2018, sem hv. þingmaður vísaði til, var bent á að brýnt sé að Útlendingastofnun innleiði rafræna umsýslu og afgreiðslu umsókna og að stofnunin bæti rafræn samskipti og rafrænt viðmót gagnvart umsækjendum. Ég tek í sjálfu sér heils hugar undir það mat.
Það hefur verið reynt að leggja mat á þennan kostnað í tengslum við vinnu við fjármálaáætlun fyrir 2020–2024. Þá hefur verið óskað eftir 94 millj. kr. fjárveitingu vegna þarfagreiningar og endurnýjunar á upplýsingakerfum Útlendingastofnunar. Í tillögunni felst þá nánar tiltekið ósk, þetta er sem sagt ósk Útlendingastofnunar, ósk um 14 millj. kr. fjárveitingu vegna ársins 2020 og 40 millj. kr. á árinu 2021 og 2022. Þetta erum við að skoða og reyna að leggja síðan sjálfstætt mat á, ráðuneytið einnig.
Spurt er hvaða kostir gætu fylgt þessari innleiðingu. Það er ljóst að rafræn meðferð mála, eins og rætt hefur verið um, skilar sér í skilvirkari og hraðari afgreiðslu mála. Umsóknum um dvalarleyfi fjölgaði til að mynda um tæp 60% frá árinu 2015 til ársins 2017, þannig að það er auðvitað brýnt að stofnunin geti brugðist vel við sveiflum í sem flestum málaflokkum. Rafræn stjórnsýsla breytir starfsumhverfi og opnar líka á mikla möguleika til umbóta í verkferlum og eðli þjónustu. Og af því að mönnum verður tíðrætt um störf úti á landi þá opnar þetta líka á möguleikann að vinna þessi mál annars staðar en í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu. Umsækjendur gætu m.a. fylgst með, það er líka mikilvægt, framvindu umsóknar sinnar og átt í beinum samskiptum í gegnum rafrænt umsóknarferli. Þá væri unnt að hafa ákveðin leyfi þannig að kerfið afgreiddi þau sjálft eins og endurnýjanir ákveðinna atvinnuleyfa, fjölskyldusameiningarleyfa o.fl. að því gefnu að öll skilyrði væru uppfyllt. Rafrænt kerfi gæti með tíð og tíma dregið úr mannaflaþörf, umsóknarferlið yrði gagnsærra og afgreiðsla mála hraðari.
Ég á ekki von á öðru en að allir séu sammála að þetta séu virðingarverð markmið og að við ættum að reyna að leita allra leiða til að hrinda í framkvæmd aukinni rafrænni stjórnsýslu í verkefnum Útlendingastofnunar eins og annarra stofnana ríkisins.