149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu dvalarleyfa.

375. mál
[17:34]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda og ekki síst hæstv. ráðherra fyrir skýr og greinargóð svör þar sem vilji ráðherra kom nokkuð skýrt fram. Ég hygg að við séum öll sammála um nauðsyn þess að bæta starfsemina hvað þetta varðar í rafrænni skráningu því að við þurfum ekkert að fara í grafgötur með hve mikið óhagræði hefur verið í því að búa ekki við hana. Það leit út fyrir að fjármunir ættu að nást í þetta við síðustu fjárlög sem breyttist svo á milli 2. og 3. umr. Því miður er fjármagnið eyrnamerkt málavinnslu og eins og ráðherra fór yfir vantar sérfjárveitingar inn í tölvukerfin, ásamt því að endurskoða þarf fjárhagsliði og fleira slíkt. Ég fagna þessum jákvæðu ummælum. Við einhendum okkur þá væntanlega í að vinna bót á þessum málum, þeim sem virkilega þurfa á því að halda til hagsbóta, þ.e. þeim sem njóta þjónustu Útlendingastofnunar.