149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu dvalarleyfa.

375. mál
[17:35]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur, fyrir þessa þörfu fyrirspurn og ráðherra fyrir ágætissvör. Það kemur mér sannarlega á óvart að enn skuli öllum umsóknum til Útlendingastofnunar vera skilað á pappír í nútímanum þegar talað er um meiri rafræna þjónustu. Mér sýnist að ekki muni veita af því að setja þær milljónir sem ráðherra talaði um í þennan málaflokk, af því að það er mjög mikilvægt að leysa þessi mál vegna aukinna umsvifa. Svo fer náttúrlega hugurinn af stað hjá mér þegar ég hugsa til byggðaáætlunar og áforma þar um störf án staðsetningar, sem nú er raunhæfur kostur þar sem verið er að klára að ljósleiðaravæða allt landið. Ég sé ekki annað en að þetta sé upplagt verkefni í það. Ég vil bara koma því að í þessari umræðu og legg það til ef við getum með nokkru móti styrkt landsbyggðina með því um leið og við bætum þjónustuna.