rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu dvalarleyfa.
Virðulegi forseti. Allur stuðningur við rafræna stjórnsýslu er augljós héðan í frá. En ég geri athugasemd við þessar upphæðir, 94 milljónir í þarfagreiningu eins og kom fram í máli ráðherra. Ég vona að það sé ekki alveg rétt upphæð. (Gripið fram í: 14.) — Það kom aðeins seinna, en ef 14 milljónir þarf í þarfagreiningu er það samt of mikið af því að hægt væri að búa hugbúnaðinn til fyrir 14 milljónir, hvað þá fyrir afganginn. Og í hvað eiga þá 80 milljónir að fara?
Það er alltaf gaman að fá nánari útskýringar á fjárlögum eftir á en það hefði verið betra að hafa nánari lýsingu á þessu þegar fjárlögin voru afgreidd. Ég hef unnið að því að gera nokkur svona kerfi, t.d. hjá Menntamálastofnun. Það voru ein 20 mismunandi tölvukerfi sem ég lagði til þar og heildarkostnaður við það var 100 milljónir, þannig að þetta fer ansi langt með að redda málunum.