rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu dvalarleyfa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið og skýran vilja í þessu máli, um innleiðingu rafrænna kerfa og betri upplýsingakerfa hjá Útlendingastofnun. Eins vil ég þakka þeim þingmönnum sem hafa blandað sér í umræðuna fyrir mikilvæg innlegg. Af orðum hæstv. ráðherra má ráða að við megum vænta skýrari markmiða og tillagna á þessu sviði í næstu fjármálaáætlun og næstu fjárlögum. Fram hafa komið sterk rök fyrir því að setja þessa vinnu í forgang og að mörg tækifæri fylgi því.
Eitt af því sem komið hefur verið inn á er að rafræn stjórnsýsla geti leitt til þess að störf skapist án staðsetningar. En við megum heldur ekki gleyma því að staða umsækjanda eftir búsetu verður jafnari. Ég hef fylgst með mörgum sem hafa þurft að nýta þjónustu stofnunarinnar en búið vítt og breitt um landið og það hefur ekki alltaf verið einfalt.
Fleiri rök fyrir innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu eru bætt samskipti og viðmót og þjónusta við einstaklinga. Útlendingastofnun hefur t.d. bent á að sníða mætti leiðbeiningar betur að hverjum og einum einstaklingi í gegnum svona kerfi. Þannig væri hægt að uppfylla betur leiðbeiningarskyldu og alla þjónustu. Eins hefur verið bent á að þjónusta við atvinnulífið, vinnuveitendur sem oft bíða eftir dvalarleyfum væntanlegra (Forseti hringir.) starfsmanna, hvort sem er í menntakerfinu, í nýsköpun eða fiskvinnslu, verði mun betri.