viðbragðsgeta almannavarna og lögreglu í dreifðum byggðum.
Virðulegur forseti. Það er mikið að gerast víða um land, bæði í því að vakta náttúruvá sem víða steðjar að og ekki síst eru það eldfjöllin okkar. Við sjáum líka heilu hlíðarnar búa sig undir að skríða fram og annað slíkt. Á þessum sömu stöðum er ferðamönnum að fjölga mikið og íbúum í dreifbýlinu er líka að fjölga, sem er vel. Það er komin svolítið önnur staða en áður á þeim svæðum þar sem nú er að skapast almannavarnaástand vegna flóða, eldgosa, hættu á skriðum o.fl. Miklu fleira fólk er komið inn á þessi svæði, bæði ferðamenn og íbúar. Það þarf þá miklu meira til að rýma svæðin og bregðast við skapist vá í náttúrunni.
Þessari fjölgun ferðamanna og íbúa fylgja einnig fleiri slys, fleiri veikindi og fleiri uppákomur sem bregðast þarf við af lögreglu og almannavörnum. Verkefnið er orðið miklu stærra. Maður upplifir það þannig að viðbragðsgetan hafi ekki fylgt alveg eftir. Við sjáum að aftur og aftur koma upp stórir atburðir. Þá eru það alltaf sömu einstaklingarnir sem eru að sinna þessu á fámennum svæðum. Á Öræfajökulssvæðinu steðjar ýmiss konar náttúruvá að. Þar er eldgos m.a. yfirvofandi og þar er fjallshlíð, Svínafellsheiðin, mögulega að skríða fram. Á þessu svæði búa að jafnaði um 150 manns — í þessu samfélagi. Það er íbúatalan. En GSM-símarnir, sem Veðurstofan er með á skrá hjá sér til að rýma svæðið ef eitthvað kemur upp á, eru 2.500. Það er ekki fólk sem situr heima og horfir á sjónvarpið. Það er fólk sem er virkt í fjallgöngum, ísklifri, jöklagöngum, úti í umferðinni og annað slíkt.
Spurningin er: Hvað hafa stjórnvöld gert til að bregðast við þessum snöggu breytingum? Hvaða áætlanir höfum við til framtíðar til að takast á við þetta svo að við getum tryggt öryggi íbúa og gesta okkar?