149. löggjafarþing — 67. fundur,  19. feb. 2019.

Landssímahúsið við Austurvöll.

538. mál
[17:01]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Það eru á netinu gríðarlega góðar myndir af teikningunum og hvernig skuggavarp hefur áhrif á nærsvæðið. Það er lítið sem ekkert samkvæmt þeim myndum. Ég hvet fólk til að kynna sér það.

Mig langar í seinna andsvari mínu að koma inn á að það er sambærileg starfsemi annars staðar nálægt þinginu og jafnvel nær þinghúsinu en Landssímareiturinn. Við getum auðvitað nefnt starfsemi hótelsins hér við hliðina á og starfsemi Klausturbars. Ég velti því fyrir mér hvort það eigi að taka eignarnámi Hótel Borg, Klausturbar, Skólabrú eða aðra sambærilega starfsemi nálægt þinghúsinu.