samningur Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum.
Virðulegi forseti. Ég fagna því mikið að þessi þingsályktunartillaga er komin hér inn í þingsal í kvöld. Það er vægast sagt ógnvekjandi sýn sem kom fram í máli hv. þm. Steinunnar Þóru.
Nú stöndum við oft í þessari pontu og í þessum þingsal og ræðum um loftslagsógnina og hversu lítinn tíma við höfum, mannkynið, þjóðir heimsins, í því samhengi. Þegar maður yfirfærir það á þessa ógn, kjarnorkuógnina, — orðið „ógn“ kemur mikið fyrir í þessari ræðu minni — er það mjög ógnvekjandi því þá myndum við ekki hafa slíkan tíma eins og við höfum þó vonandi fyrir okkur í loftslagsmálunum. Gerist það að einhver stjórnmálamaður eða einstaklingur eða stjórnmálasamtök eða einhver þjóð ákveði að láta til skarar skríða, þá er bara úti um mannkynið mun fyrr en loftslagsmálin gætu nokkurn tímann komist nálægt. Eins og hv. þingmaður talaði um er búið að þróa þessi vopn töluvert miklu meira en þau sem voru sprengd fyrir öllum þessum árum. Þetta er náttúrlega alveg svakalegt ef maður fer að hugsa um þetta.
Eins leiðir maður ósjálfrátt hugann að því hvers vegna þetta sé ekki meira í umræðunni. Þetta er svo rosaleg ógn. Við sjáum stjórnmálamann fyrir vestan, sem er forseti Bandaríkjanna, sem virðist til alls líklegur. Það er eins gott (Forseti hringir.) að við förum að taka þetta alvarlega og ræðum þetta meira innan stjórnmálanna. Ég held að ástæðan sem gæti verið fyrir því, sé …(Forseti hringir.) Já, ég þori ekki að styggja forseta.