fordæming viðbragða stjórnvalda á Spáni við atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu.
Herra forseti. Til að byrja með vil ég þakka hv. þm. Álfheiði Eymarsdóttur fyrir að eiga frumkvæðið að þessu máli, fyrir að leggja það fram og fyrir að vera okkur öllum hvatning til að fordæma viðbrögð spænskra stjórnvalda í kjölfar atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu, þá sérstaklega handtöku á katalónskum stjórnmálamönnum. Þetta finnst mér mikilvægt og ég styð þingsályktunartillöguna heils hugar enda meðflutningsmaður á henni.
Ég vil líka þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða og skelegga ræðu hérna rétt áðan og sömuleiðis hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur. Ég tel mig ekki þurfa að fara aftur yfir þau efnisatriði sem við ræðum hér. Ég tel að hv. þingmenn hafi farið mjög vel yfir þessa stöðu og hversu flókin hún er, en þó hver kjarninn í þessu er. Hann er að burt séð frá skoðunum okkar um sjálfstæði Katalóníu, burt séð frá skoðunum okkar um það hvort Katalóníubúar hafi sjálfsákvörðunarrétt sem gangi framar fullveldi hins spænska ríkis, hljótum við að fordæma pólitísk réttarhöld sem þessi, fordæma varðhald í þetta langan tíma og svona þungar ákærur fyrir að hafa verið þingmenn sem lýstu sínum skoðunum, fyrir að hafa barist fyrir sínum hugsjónum á þingi. Við sem þingmenn hljótum að sjá hversu hættulegt það er lýðræðinu og hversu alvarlegt það er að slíkt sé að gerast í lýðræðisríki eins og Spáni.
Við pössuðum sérstaklega upp á það við vinnslu þessarar tillögu að taka ekki afstöðu til sjálfsákvörðunarréttar Katalóníubúa vegna þess, eins og við vitum, að þjóðarétturinn er svolítið flókinn þegar kemur að sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Ef um er að ræða fullvalda ríki getur þjóðarbrot eða ákveðinn hluti af því ríki ekki aðskilið sig frá ríkinu nema allir greiði um það atkvæði, nema í ákveðnum undantekningartilfellum sem eru m.a. þegar níðst er sérstaklega á þjóðarbrotinu eða landsvæðinu, þegar mikið er um mannréttindabrot og þegar mjög alvarleg mannréttindabrot eða jafnvel þjóðernishreinsanir eiga sér stað. Ég myndi ekki segja endilega að ástandið sé komið á þann stað en mér finnst spænsk yfirvöld að einhverju marki vera að búa til þær aðstæður með framgöngu sinni. Það þykir mér mjög leitt og mjög skrýtið.
Ég vildi aðeins koma inn á þetta vegna þess að auðvitað eiga þjóðarbrot sér sjálfsákvörðunarrétt og það er mikilvægt að við virðum hann en það geta verið skiptar skoðanir um hvort þessi skilyrði séu uppfyllt eða ekki. Þess vegna var farin sú leið í þessari tillögu að einblína bara á þau mannréttindabrot sem viðgangast, þessa alvarlegu ógn að lýðræðinu sem fær að viðgangast á Spáni með þessum pólitísku réttarhöldum, með fangelsun pólitískra fulltrúa, kjörinna fulltrúa, og líka með því að nota Interpol-kerfið og Europol-kerfið til að eltast við pólitíska fulltrúa utan landsteina Spánar. Verandi meðlimsríki í Evrópusambandinu, ekki nágrannaríki okkar í Evrópu en vissulega vinaríki okkar í Evrópu, hljótum við að vilja vera sá vinur sem til vamms segir. Ísland er lítið land en getur haft mikil áhrif með hugrökkum ábendingum eins og þessum, með hugrökkum ávítum eins og þessum. Við getum sýnt fordæmi úti um allan heim og sýnt fram á að okkur sé virkilega annt um réttarríkið, lýðræðið og mannréttindi eins og hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir komst svo vel að orði áðan.