149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

afsökunarbeiðni.

[10:32]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Í umræðum hér í gærkvöldi og í viðræðum við hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur notaði ég óviðurkvæmilegt orðalag sem ég vil af sama stóli biðja hv. þingmann velvirðingar á. Það er svo, eins og við vitum öll, að okkur ber að umgangast hvert annað í þessum sal af kurteisi og virðingu. Upp á hvort tveggja skorti í mínu tilfelli í gærkvöldi. Ég endurtek afsökunarbeiðni mína til hv. þingmanns og þakka forseta fyrir það tækifæri að fá að koma hingað upp og flytja þetta héðan úr þessum stól.