aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir kjarasamningum.
Virðulegi forseti. Við erum í vikunni að kynna skattalækkun fyrir launþegana í landinu þannig að þeir sem eru fullvinnandi á lægstu laununum fá mesta lækkun skattbyrði. Ég sakna þess að hv. þingmaður komi hér upp og segi: Vel gert, góð tillaga. Ríkið er að nota svigrúmið sem það hefur eftir mörg ár hagvaxtar til að teygja sig til launamanna í landinu. Ég hélt að málið snerist um það. Ég hélt að við værum sammála um að ef ríkið gæti lagt eitthvað af mörkum, fyrir utan það að lækka tryggingagjald og að koma súrefni til atvinnulífsins, þá ætti það að styðja við góða samninga á vinnumarkaði með því að hleypa súrefni þangað. Það myndi draga úr þörfinni fyrir launahækkanir, ríkið tæki á sig ákveðinn hluta, gæfi eftir af skatti sem er innheimtur í ríkissjóð. Þetta erum við að gera.
Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á þessu annað en að ræða um einhverjar tæknilegar útfærslur eins og tveggja eða þriggja þrepa kerfi? Virkni kerfisins er það sem skiptir máli. Þegar við felldum niður þriggja þrepa kerfið vorum við að eiga við gamla kerfið. Nú erum við að breyta kerfinu eins og það er 2019 og erum að koma með nýtt lægra skattþrep sem skilar mestum ávinningi fyrir fólk sem er í fullu starfi úti á vinnumarkaðinn. Það er það sem við erum að gera. Ég er ánægður með tillöguna að þessu leytinu til. Hún skilar rúmlega 80.000 kr., fyrir utan það sem við erum að gera í barnabótum og með sérstakri hækkun persónuafsláttar til heimilanna. Þetta er gríðarlega mikilvægt.
Samsköttun hjóna er ekki hætt. Persónuafsláttur er áfram millifæranlegur, en já, við erum að segja að við getum fórnað ákveðnum hluta frá þeim sem eru í hátekjuskattsþrepinu og nýtt vannýtt næsta þrep fyrir neðan til að ná meiri árangri fyrir láglaunafólk. Við erum að gera það vegna þess að við höfum verið að hlusta.
Ríkisstjórnin getur auðvitað ekki borið ábyrgð á væntingum sem eru langt umfram það sem segir í fjármálaáætlun og hefur fram komið á fundum. Og væntingar t.d. um það að ríkið geti gefið eftir 20.000 kr. (Forseti hringir.) í tekjuskatt af 325.000 kr. launamanni eru væntingar um að ríkið gefi meira eftir en það innheimtir, vegna þess að það innheimtir ekki (Forseti hringir.) 20.000 kr. í tekjuskatt af 325.000 kr. launum.