nýjar úthlutunarreglur LÍN.
Herra forseti. Kjarabarátta launafólks heldur áfram. Þau tíðindi sem við höfum fengið af kjaraviðræðum í þessari viku auka ekki bjartsýni okkar á að hér muni íslenskt samfélag ganga sinn vanagang á næstu vikum og mánuðum, heldur þvert á móti virðist stefna í verkfall hjá stórum hópi launafólks um allt land. Staðan er grafalvarleg. En launafólk er ekki eina fólkið sem heyr kjarabaráttu hér á landi. Stúdentar hafa undanfarin misseri einnig háð sína kjarabaráttu en viðsemjandi þeirra hefur allt þeirra líf, framtíð þeirra og fjölskyldna þeirra í hendi sér og stúdentar hafa engan verkfallsrétt. Þeir hafa það eina tromp á hendi að án menntunar verður þessi þjóð fátækari á allan hátt, einsleitari, fátækari, hagsæld verður minni og samkeppnishæfni okkar skerðist umtalsvert.
Á þriðjudaginn kemur mun stjórn LÍN birta sínar nýju úthlutunarreglur og bíða stúdentar í ofvæni. Verður hægt að halda öllu lengur áfram? Er hægt að leggja það á þá og fjölskyldur að mennta sig til framtíðar fyrir okkur öll? Kröfur stúdenta eru ekki úr hófi eða flóknar. Þeir eru að krefjast þess að námslán dugi fyrir lágmarksframfærslu sem og að frítekjumark þeirra verði sambærilegt því sem tíðkast á Norðurlöndum og þá hærra en einungis 930.000 kr. á ári eins og er núna sem er bæði minna og jafnvel helmingi minna en þekkist á Norðurlöndum eins og í Noregi og Danmörku.
Ég vil því spyrja hæstv. menntamálaráðherra: Mun frítekjumarkið verða hækkað og þá hversu mikið? Jafnframt vil ég spyrja hvort ætlunin sé að taka mið af neyðarópi stúdenta vegna lágrar framfærslu. Hvaða hugmyndir hefur hæstv. ráðherra varðandi lágmarksframfærslu stúdenta? Getur hún tilgreint einhverja ákveðna fjárhæð sem hún telur eðlilegt að námsmenn lifi á eða verða þeir að leita annað með menntun sína?