hætta á verkföllum og leiðir til að forðast þau.
Herra forseti. Mig langar að ræða við hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson, um hættuna á verkföllum og tillögur til að forðast þau. Það er hægt að koma í veg fyrir þessa hrinu verkfalla sem við stöndum frammi fyrir. Það eru nefnilega alveg sérstök skilyrði fyrir hendi í stjórnmálum á Vesturlöndum í dag þar sem verkalýðshreyfingin á Íslandi og hægri sinnaði fjármálageirinn á Vesturlöndum eru sammála um skattkerfisbreytingar til að koma í veg fyrir massífa öldu verkfalla og óánægju sem grefur undan frjálslyndu lýðræði og já, markaðshyggjunni. Það er þess vegna sem vestræni fjármálageirinn er búinn að stíga fram með skattkerfisbreytingar sem ríma við kröfur verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi í dag. Þetta kemur fram í leiðaragrein tímaritsins The Economist í ágúst sl. Financial Times hefur líka lagt fram mikið af tillögum hvað þetta varðar, en það tímarit, sem er eitt virtasta fjármáladagblað heimsins, birti nýlega grein með fyrirsögninni, með leyfi forseta: Popúlismi er hin sanna arfleifð heimskrísu fjármálakerfisins, þ.e. fjármálahrunsins. Og eitt virtasta hagfræðitímarit í heimi, The Economist, lagði til í ágúst, eins og ég sagði, heildarendurskoðun skattkerfisins fyrir 21. öldina, sem rímar fullkomlega við kröfur verkalýðshreyfingarinnar í dag um skattkerfisbreytingar.
Tækifærið sem við höfum í dag til að koma í veg fyrir hrinu verkfalla sem við stöndum frammi fyrir er að hægri og vinstri á Íslandi eru saman í ríkisstjórn. Verkföllin sem við stöndum frammi fyrir voru fyrirséð og hæstv. fjármálaráðherra og ég höfum talað um þessa áhættu í mörg ár, undir þessum lið, óundirbúnar fyrirspurnir.
Ég vil því spyrja Bjarna Benediktsson: Hve vel hefur hæstv. fjármálaráðherra kynnt sér þessar skattatillögur fjármálageirans á Vesturlöndum annars vegar og hins vegar hve vel samrýmast þær skattatillögum verkalýðshreyfingarinnar hér á landi?