149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

542. mál
[11:30]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir innlegg hans hér og tek undir að nefndin skoði þessi atriði. En rétt til að bregðast við varðandi gjaldtökuna þá er þar í raun verið að reyna að virkja hinar svokölluðu mengunarbótareglu, þ.e. sá aðili sem fer að einhverju leyti á svig við lögin greiði fyrir þá stjórnsýslu sem af því hlýst.

Þetta er nokkuð sem nefndin getur tekið til skoðunar í samráði við okkur í ráðuneytinu, að sjálfsögðu. Ég þakka fyrir.